Tónlist

R. Kelly gefur út svartar nærbuxur

Plötuumslagið hefur vakið athygli.
Plötuumslagið hefur vakið athygli.
„Kvenfólk hendir gjarnan nærbuxum á sviðið þegar ég syng. Og í eitt skipti fékk ég svartar nærbuxur í miðstærð í mig og þær festust við úlnliðinn á mér.“

Þetta er ástæðan fyrir því að söngvarinn R. Kelly titlar nýjustu plötuna sína Black Panties, eða svartar nærbuxur.

Platan kemur út í Bandaríkjunum í dag og er 12. plata söngvarans frá Chicago.

Hann segir þetta vera allt öðruvísi plata en hann hefur gefið út undanfarið. Nokkur tónlistartímarit hafa fjallað um plötuna og hefur hún fengið misjafna dóma.

Hér fyrir neðan fylgir glænýtt myndband af plötunni, við lagið Cookie.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.