Lífið

Brúðkaupsbomba árið 2013

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Mikið var um brúðkaup á árinu í stjörnuheimum en athygli vekur að 8. júní var vinsælasta dagsetningin fyrir þennan stóra dag hjá fræga fólkinu.

Brúðkaupin voru jafn misjöfn og þau voru mörg – allt frá ævintýrabrúðkaupi i Disneylandi til afslappaðrar veislu með hlaðborði af djúpsteiktum kjúklingi og vöfflum. Fréttablaðið leit yfir árið og fékk að skyggnast inn í nokkur myndaalbúm stjarnanna.

4. maí

Leikkonan Keira Knightley giftist hljómborðsleikaranum James Righton í Provence í Frakklandi. Keira var klædd í Chanel frá toppi til táar og var fimmtíu gestum boðið í gleðina.



26. maí

Breaking Bad-stjarnan Aaron Paul gekk að eiga sína heittelskuðu, kvikmyndagerðarkonuna Lauren Parsekian, í Malibu í Kaliforníu. Þemað var einfaldlega París enda trúlofuðu þau sig þar árið 2011.





1. júlí

Söngkonan Avril Lavigne klæddist svörtum kjól frá Monique Lhuillier þegar hún gekk að eiga Nickelback-goðið Chad Kroeger í frönskum kastala. Dagsetningin var engin tilviljun því 1. júlí 2013 var eitt ár liðið frá þeirra fyrsta stefnumóti.





8. júní

Madeleine Svíaprinsessa fann ástina í örmum bankamannsins Christophers O‘Neill en þau giftu sig í Stokkhólmi. Um 470 gestir voru viðstaddir veisluna og prinsessan klæddist sérsaumuðum kjól frá Valentino.



10. september

Glamúrfyrirsætan Holly Madison gekk í það heilaga með Pasquale Rotella í Disneylandi. 150 vinir og ættingjar glöddust með parinu og var dóttir þeirra, Rainbow Aurora, heiðursgestur.





31. ágúst

Leikkonan Kate Bosworth gekk að eiga leikstjórann Michael Polish á búgarði í Montana. Kate klæddist tveimur kjólum frá Oscar de la Renta, öðrum í sjálfri athöfninni og hinum í veislunni.







21. október

Idol-stjarnan Kelly Clarkson giftist Brandon Blackstock í Tennessee og var svo mikil leynd yfir brúðkaupinu að fjölmiðlar fengu ekki veður af því fyrr en daginn eftir. Tæplega mánuði seinna tilkynnti Kelly að skötuhjúin ættu von á sínu fyrsta barni.







7. september

Stórleikarinn Patrick Stewart, 73ja ára, kvæntist söngkonunni Sunny Ozell, 35 ára, en það var leikarinn Sir Ian McKellan sem gaf þau saman. Sunny klæddist frönskum blúndukjól frá Temperley London og birti Patrick mynd af þeim á Twitter þegar þau voru búin að játast hvort öðru.

https://img.visir.is/apps/pbcsi.dll/bilde?Site=XZ&Date=20131207&Category=PROFILE&ArtNo=131209237&Ref=V8&NoBorder
12. október

Leikkonan Rose McGowan sagði já við listamanninn Davey Detail í Los Angeles og klæddist unaðslegum kjól frá Monique Lhuillier. Sextíu gestir fögnuðu með hjónunum og boðið var upp á Suðurríkjahlaðborð, meðal annars djúpsteiktan kjúkling og vöfflur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.