Tónlist

Er Iceland Airwaves besta tónlistarhátíð í heimi?

Af Iceland Airwaves árið 2013
Af Iceland Airwaves árið 2013 Vísir/Arnþór
„Iceland Airwaves heldur sérstöðu sinni og ber af öðrum tónlistarupplifunum. Furðuleg, norræn og falleg viðhorf til tónlistar ásamt því sem hljómsveitir og fólk sem heimsækir þetta undursamlega land upplifa, er eitthvað sem hvergi er hægt að leika eftir.

Ímyndið ykkur bestu hluta ATP, SXSW og Glastonbury flutt í borg sem er sömu stærðar og lítill breskur bær. Ímyndið ykkur tónlistarhátíð með mörgum tónlistarstöðum án þess að standa frammi fyrir vegalengdunum. Bætið við töfrunum sem felast í norðurljósunum og frægustu hljómsveit landsins stíga á stokk annars lagið og þið getið byrjað að gera ykkur í hugarlund hversu einstakur árlegur viðburður Iceland Airwaves er.“

Iceland Airwaves, 2013Vísir/Valli
Svona hefst umfjöllun breska tónlistarvefsins The Line of Best Fit um tónlistarhátíðina Iceland Airwaves.

Greinin ber titilinn Iceland Airwaves 2013: Besta tónlistarhátíð í heimi?

Höfundur greinarinnar er gestur hátíðarinnar í þriðja sinn og hefur ýmislegt um hana að segja - en umfjöllunin er þriggja síðna löng.

Höfundur nefnir jafnframt fjölda hljómsveita á borð við Grísalappalísu, Sóley, Samaris, Björk, Kraftwerk, Yo La tengo og fleiri í umfjöllun sinni og ber flestum söguna vel.

Iceland Airwaves, 2013Vísir/Arnþór





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.