Tónlist

Kanye rauk af sviði

Kanye West
Kanye West AFP/NordicPhotos
Kanye West fór í fússi af sviðinu á tónleikum í Flórída-fylki í Bandaríkjunum á laugardaginn síðastliðinn, vegna þess að hann var óánægður með tæknileg atriði á tónleikunum, segja slúðurmiðlar.

Samkvæmt þessum sömu heimildum var rapparinn óánægður með lýsinguna og hljóðið á tónleikum sínum.

Kanye var byrjaður á þriðja lagi kvöldsins þegar hann lét stoppa tónlistina og fór af sviðinu því hann vildi láta slökkva ljósin.

Þrátt fyrir tæknilega örðugleika kláraði Kanye tónleikana og hlaut ágætis gagnrýni fyrir.

Sean Daly, tónlistargagnrýnandi hjá The Tampa Bay Times í Flórída sagði tónleikana hafa verið tilkomumikla og ófyrirsjáanlega, eins og Kanye er von og vísa.

Tónleikaferðalagi Kanye West lýkur formlega í Toronto í Kanada þann 23. desember næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.