Tónlist

"Ég missi mig, mér finnst svo gaman á jólunum“

Fréttablaðið/Valli
„Ég er jólabarnið - með greini,“ segir Bubbi Morthens, en hann heldur Þorláksmessutónleika á Akranesi þann 19. desember, í Hofi þann 21. desember og í Hörpu þann 23. desember. 

Auk þess heldur hann tónleika á aðfangadag í fangelsinu á Litla hrauni.

„Það sem ég elska mest við jólin er maturinn. Konan mín eldar kalkún og hann er brjálæðislega góður. Síðan finnst mér dásamlegt að sjá öll börnin mín í sínu fallegasta pússi, og þegar að við setjumst við tréð og förum að lesa á pakkana. Ég er jafnvel verri en þau ég verð svo spenntur - ég er ekki að grínast - ég missi mig, mér finnst gaman svo á jólunum,“ bætir Bubbi við.

Hér að neðan fylgir nýtt textamyndband við lag Bubba af jólaplötunni Æsku minnar jól. Lagið heitir Ljós og fagur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.