Lífið

Viðamestu upptökur Stöðvar 2 frá upphafi

Ellý Ármanns skrifar
Smelltu á mynd til að skoða albúmið í heild sinni.
Smelltu á mynd til að skoða albúmið í heild sinni. Myndir/Andri Marinó
Upptökur á Ísland Got Talent hófust fyrr í þessari viku í Austurbæ. Um er að ræða viðamestu sjónvarpsupptökur sem Stöð 2 hefur farið í frá upphafi. Í þessari fyrstu umferð taka 120 atriði þátt þar sem fram koma 200 einstaklingar ásamt 80 fylgdarmönnum.

,,Verkefnið er samstarfsverkefni RVK Studios og framleiðsludeildar Stöðvar 2 þar sem 70 starfsmenn koma að framleiðslu á fyrstu upptökudögunum.  Undanfarin misseri hefur Stöð 2 verið að uppfæra og keypt nýjan tækjabúnað fyrir framleiðslu stöðvarinnar og þetta er fyrsta stóra verkefni nýs útsendingarbíls Stöðvar 2 sem samanstendur af 8 HD myndavélum ásamt 8 öðrum HD myndavélum víðsvegar um húsið," segir Gísli Berg framleiðslustjóri Stöðvar 2.

,,Leitin hófst í október þegar við fórum á 13 staði víðsvegar um landið til þess að finna atriði til þess að koma fram í fyrstu prufunum. Fyrstu þættirnir eru teknir upp með fullum sal af áhorfendum og þá fyrst sér dómnefndin atriðin og spennan er mikil," útskýrir Gísli.

Got Talent þættirnir hafa farið sigurgöngu um allan heim. Þættirnir hafa verið gerðir í 55 löndum og búið er að framleiða samtals 177 seríur.

Smelltu á efstu mynd í frétt til að skoða allar myndirnar.

Kaupa áskrift hér.

Bubbi brattur baksviðs - myndir.


Auðunn Blöndal er kynnir keppninnar.
Baksviðs.
Þættirnir eru á dagskrá Stöðvar 2 í janúar.
Bubbi Morthens veit hvað hann syngur.
Einvala lið situr í dómarasætunum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.