Tónlist

Samdi jólatexta í sólbaði í sumar

Gunnar Leó Pálsson skrifar
„Þetta er lag eftir tónskáldið Maria Mena sem er hálfnorsk en ég heyrði þetta lag í sumar og kolféll fyrir því," segir tónlistarkonan Greta Salóme sem var að senda frá sér lagið Ég vil komast heim um jólin.

Greta Salóme samdi jólatextann í sólbaði í sumar á pallinum heima. „Hann fjallar um hvernig það er að komast heim um jólin. Þetta er svona notalegt og kósý jólalag, svona eins og jólin eiga að vera finnst mér."

Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson tók lagið upp en í laginu leikur Ólafur Hólm Einarsson á trommur, Sunna Gunnlaugsdóttir á píanó, Greta Salóme syngur og spilar inn strengi og Þorvaldur Bjarni leikur á gítar og bassa, ásamt því að stjórna upptökum.

„Þetta er fyrsta lagið ég gef út sem er ekki eftir mig," bætir Greta Salóme við. Hún er þessa dagana á fullu á tónleikaferðalagi með Jólin alls staðar en alls leikur hópurinn á 21. tónleikum út um allt land.

„Eins og er langar mig helst bara í smá hita og sól," segir Greta Salóme, aðspurð um hvað henni langi helst í jólagjöf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.