Sannleikurinn: Eiður Smári leiðir lista Framsóknarflokksins í Reykjavík Andri Þór Sturluson skrifar 20. nóvember 2013 20:26 „Þetta er heiður,“ sagði Eiður. „
Ég held að það séu mikil sóknartækifæri fyrir Framsóknarflokkinn í borginni. Mér hefur fundist að áherslurnar í borgarstjórninni hafi verið meira fyrir suma, en ekki fyrir alla. Ég hætti í landsliðinu til að geta betur sinnt raunverulegri ástríðu minni. - Skipulagsmálum í Reykjavík. Ég vona að ég hafi stuðning fólks,“ segir Eiður Smári Guðjohnsen sem leiðir lista Framsóknarflokksins í borgarstjórnarkosningum í vor.Eiður segir nauðsynlegt að taka fastar á fjármálum borgarinnar. „Það er staðreynd að núverandi meirihluti tók við 18 milljörðum í handbæru fé og hallalausum rekstri árið 2010. Það hefur verið gengið á þetta handbæra fé og skuldaaukningin er 28 milljarðar á þremur árum. Það er gríðarlega mikilvægt að grípa aftur í taumana.“ Eiður sagði að góður hópur hefði valist til að fara fyrir lista framsóknarmanna í borginni. Hann kallar listann „Landslið Framsóknarmanna“ og segir hópinn sigurstranglegan og hafa ágætlega breiða skírskotun. „Ég er því bjartsýnn á að okkur gangi vel.“Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu en þar eru framsóknarmenn í stórsókn.
Harmageddon Mest lesið Yfirleitt ekki verið að drepa samkynhneigða Harmageddon Hver drap Kurt Cobain? Sýnishorn úr nýrri mynd Harmageddon Ofsóttur af Boko Haram - óvelkominn á Íslandi Harmageddon Tuttugu ára afmæli X-977 - Ensími Harmageddon Sætar stelpur kúka líka Harmageddon "Þetta er besta platan okkar“ Harmageddon Blaðamennska á átakasvæðum Harmageddon „Örn Bárður er einhver versta auglýsing fyrir Jesú Krist“ Harmageddon "Píkan mín er svo ljót" Harmageddon Notuðu Twitter aðgang Mike Tyson til að kynna nýja plötu. Harmageddon