Harmageddon

Hringdi í aðdáanda á sviði

Ómar Úlfur skrifar
Trent Reznor er góður maður
Trent Reznor er góður maður
Trent Reznor nýtti sér tæknina til að gleðja aðdáanda Nine Inch Nails á dögunum.

Andrew Youssef er krabbameinssjúkur og mikill aðdáandi Nine Inch Nails. Hann sagði frá því á bloggi sínu að tónlist sveitarinnar hefði hjálpað sér mikið eftir að hann greindist.

Trent setti sig í samband við hann í gegnum facetime á meðan sveitin var ennþá á sviði. Nine Inch Nails voru að klára tónleika í Las Vegas og tileinkaði Reznor aðdáandanum lokalag tónleikana In This Twilight og horfði Youssef á herlegheitin í gegnum símann.

Þeir höfðu áður verið í sambandi í gegnum Twitter og var Youssef boðið á æfingu með sveitinni í Los Angeles og hann snæddi sömuleiðis með Reznor.

Hér fyrir neðan má sjá myndband af Nine Inch Nails flytja In This Twilight.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.