Tónlist

Nýtt jólalag frá Sigríði Thorlacius

Sigríður Thorlacius
Sigríður Thorlacius Fréttablaðið/Valli
Sigríður Thorlacius söngkona sendi frá sér nýja jólaplötu á dögunum, sem heitir Jólakveðja.

Lögin á plötunni eru samin af Guðmundi Óskari Guðmundssyni bassaleikara og Bjarna Frímanni Bjarnasyni, píanó- og fiðluleikara.

Auk þeirra leika þeir Ómar Guðjónsson gítarleikari og Helgi Svavar Helgason trommuleikari á plötunni.

Útgáfutónleikar verða í Fríkirkjunni þann 18. desember og á Græna hattinum á Akureyri þann 20. desember.

Lagið sem fylgir fréttinni heitir Ljósin frá í gær og er af nýju plötunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.