Tónlist

Bono tekur Daft Punk smellinn Get Lucky

Jonathan Ive, hönnuður hjá Apple og einn að mönnunum að baki hönnunar iPhone-símanna, fékk góðvin sinn, hönnuðinn Marc Newson í lið með sér til að halda góðgerðaruppboð í Sothebys í London um helgina.

Uppboðið var til styrktar RED, góðgerðarsamtökum Bono úr hljómsveitinni U2 en RED beita sér fyrir baráttunni gegn útbreiðslu AIDS í Afríku.

Uppboðið var vel sótt og mátti meðal annars sjá Harrison Ford, John McEnroe, Jenna og Barböru Bush, Sir Terence Conran, Chris Martin, Gayle King og Charlie Rose. Þá voru Tim Cook, frá Apple og Laureen Powell Jobs, ekkja Steve Jobs, einnig á staðnum.



Uppboðið var einnig sérstakt að því leytinu til að það voru tónlistaratriði á milli þess sem hlutir voru boðnir upp.

Í einu atriðini söng Bono lagið Get Lucky, með Nile Rodgers og hljómsveitinni Chic.

Hér að neðan má sjá myndband úr veislunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.