Lífið

Selena hefur áhyggjur af Bieber

Söng- og leikkonan Selena Gomez hefur áhyggjur af fyrrverandi kærasta sínum, poppprinsinum Justin Bieber.

Hún saknar saklausa stráksins sem hún varð ástfangin af og finnst hann hafa breyst mikið síðustu mánuði að sögn heimildarmanns Hollywood Life.

Selena hefur áhyggjur af Bieber.
„Hún saknar Justins. Hann er ekki sama manneskjan og hún varð ástfangin af og hún er hrædd um að egóið hans verði honum að falli. Hún vill ekki tengjast honum á nokkurn hátt vegna neikvæðrar umræðu,“ segir heimildarmaðurinn og bætir við að Selena sé í rusli eftir að hafa séð myndbandið af Justin með vændiskonunni í Brasilíu.

Á meðan allt lék í lyndi.
Lífið á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.