Tónlist

Miley Cyrus órafmögnuð hjá BBC1

Miley Cyrus og Lana Del Rey
Miley Cyrus og Lana Del Rey AFP/NordicPhotos/Samsett mynd
Miley Cyrus mætti í “The Live Lounge“ hjá BBC1 Radio í gær.

Þar söng hún smellinn Summertime Sadness eftir Lönu Del Rey.

Flutningur Miley hefur vakið mikla athygli og eru margir hrifnir af útgáfu Miley af laginu vinsæla.

Þá þykir fréttnæmt í slúðurmiðlum vestanhafs að Miley Cyrus er fullklædd á meðan á flutningnum stendur, en Cyrus hefur verið mikið í sviðsljósinu undanfarið og þá sérstaklega fyrir myndband sitt Wrecking Ball, þar sem hún fer úr hverri spjör og fyrir framkomu sína a VMA-tónlistarhátíðinni fyrr á árinu.

Myndbandið hefur fengið tæplega milljón áhorf síðan það var sett inn í gærkvöldi og fylgir fréttinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.