Harmageddon

Beck með nýja plötu.

Ómar Úlfur skrifar
Tónlistarkamelljónið Beck Hansen
Tónlistarkamelljónið Beck Hansen
Ný plata með Beck Hansen mun líta dagsins ljós í febrúar.

Mourning Phase heitir gripurinn og er fyrsta nýja plata Beck í 6 ár eða síðan Modern Guilt kom út árið 2008.

Beck skrifaði nýverið undir samning við Capitol Records og mun nýja platan koma út hjá því fornfræga útgáfufyrirtæki. Beck hefur lýst plötunni sem rökréttu framhaldi Sea Change sem að kom út 2002 og var að mestu leyti órafmögnuð. Beck hefur glímt við marga strauma og stefnur á ferlinum en fjölmargir aðdáendur kappans kunna best við hann í órafmagnaða gírnum. Þeir ættu því ekki að verða fyrir vonbrigðum með nýju plötuna.

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið við lagið Lost Cause af Sea Change








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.