Tónlist

At the Gates á Eistnaflugi

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
At the Gates þykja líflegir á sviði.
At the Gates þykja líflegir á sviði.
Sænska þungarokkshljómsveitin At the Gates verður eitt af aðalnúmerunum á rokkhátíðinni Eistnaflugi næsta sumar en þá verður hátíðin haldin í tíunda sinn. Sveitin spilar melódískt dauðarokk og þykir goðsagnakennd í sínum geira. Stefán Magnússon, einn af forsvarsmönnum hátíðarinnar, fagnar komu Svíanna og lofar góðum tónleikum fyrir þeirra hönd.

„Þetta er risapungur og algjör handsprengja,“ segir Stefán og segir samkomulag hafa náðst við sveitina í sumar. „Þeir eru yfirleitt aðalnúmerið hvar sem þeir koma fram og klikka ekki á tónleikum. Við erum ekki að fara að upplifa eitthvað prump.“

At the Gates var stofnuð árið 1990 og gaf út sína þekktustu plötu, Slaughter of the Soul, fimm árum síðar. Sveitin þykir ein af þeim merkustu úr sænsku dauðarokksbylgju tíunda áratugarins og drengirnir voru tíðir gestir í þungarokksþáttum evrópsku MTV-sjónvarpsstöðvarinnar á sínum tíma.

„Þeir tóku langa pásu, fimm eða sex ár, en hafa undanfarin ár verið duglegir,“ segir Stefán og aðspurður hvort þeir verði stærsta númer Eistnaflugs segir hann þá vera hjartaásinn. „Ham eru spaðaásinn. Þeir eru alltaf uppáhalds. Þeir hafa ekki spilað á Eistnaflugi síðan 2011 og það verður frábært að fá þá aftur.“

Miðasala á Eistnaflug hefst 1. nóvember og auk At the Gates og Ham koma sveitirnar Sólstafir, Skálmöld, Zatokrev, The Vintage Caravan og Brain Police fram ásamt fleirum. „Það á eftir að tilkynna margar hljómsveitir til viðbótar. Við ákváðum að hefja miðasölu fyrr en vanalega, en það er þægilegra fyrir erlendu gestina. Það hafa aldrei komið jafn margir erlendir gestir og síðast en við ætlum að reyna að toppa það næsta sumar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.