Tónlist

Ný tónlist frá Ocean næsta sumar

Frank Ocean gefur út nýja tónlist næsta sumar.
Frank Ocean gefur út nýja tónlist næsta sumar. nordicphotos/getty
Frank Ocean ætlar ekki að senda frá sér nýja tónlist fyrr en næsta sumar. Þetta sagði hann á Tumblr-bloggsíðu sinni er hann svaraði spurningu aðdáanda.

Fyrsta plata hans, Channel Orange, kom út árið 2012.

Stutt er síðan Ocean sagðist í viðtali við Oyester Magazine hafa selt krakk og kókaín  þegar hann var í skóla. "Ég var bófi. Ég seldi mikið af krakki og kókaíni."

Ocean spilar næst í Los Angeles 9. nóvember með Tyler, The Creator, félaga sínum úr Odd Future. Þetta verða fyrstu tónleikar Ocean síðan hann varð að hætta á tónleikaferð sinni um Ástralíu í lok júlí eftir að hafa skaddað raddbönd sín.

Skömmu áður söng hann í Laugardalshöllinni við góðar undirtektir, eða 16. júlí.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.