Leikjavísir

Fyrsta auglýsingin fyrir PlayStation 4

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Svona mun nýja PlayStation 4 leikjatölvan líta út.
Svona mun nýja PlayStation 4 leikjatölvan líta út. MYND/SONY
Fyrsta auglýsingin fyrir PlayStation 4 leikjatölvuna hefur litið dagsins ljós. Leikjatölvan kemur út þann 15. nóvember næstkomandi og er ríkir talsverð eftirvænting meðal leikjatölvuunnenda.

Lagið 'Perfect Day' með bresku hljómsveitinni Velvet Underground ómar undir í auglýsingunni þar sem tveir karlmenn berjast, þeysast á kappakstursbílum og skjóta hvorn annan líkt og í vinsælum tölvuleikjum.

Auglýsingin á að sýna fram á þá möguleika sem felast í netspilun með nýju PlayStation 4 tölvunni. Leikjatölvan kemur út þann 15. nóvember í Bandaríkjunum en 29. nóvember í Evrópu. Búist er við hörðum slag á leikjatölvumarkaði á næstu misserum því Xbox One leikjatölvan kemur út þann 22. nóvember næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×