Körfubolti

Segið LeBron að hafa áhyggjur af Miami

LeBron er kominn í rimmu við Garnett og Pierce.
LeBron er kominn í rimmu við Garnett og Pierce.
Ummæli LeBron James um þá Kevin Garnett og Paul Pierce á dögunum fóru illa í leikmennina. James gagnrýndi þá fyrir að yfirgefa Boston en þeir gagnrýndu Ray Allen mikið er hann fór frá Boston á sínum tíma.

"Það fyrsta sem ég hugsaði er þeir fóru frá Boston var vá. Þeir slátruðu Allen fyrir að fara frá Boston og núna er þeir farnir," sagði LeBron um daginn.

Garnett var ekki hrifinn af þessum ummælum.

"Segið LeBron að hafa bara áhyggjur af Miami. Þetta kemur honum ekkert við," sagði Garnett.

Hann fór til Brooklyn Nets í sumar ásamt Pierce. Pierce segir að Boston hafi skipt þeim til Brooklyn og því sé þeirra mál ekki líkt máli Allen.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×