Tónlist

Kanye West ber við sjálfsvörn

Kanye West ber við sjálfsvörn eftir að hafa verið kærður fyrir líkamsárás og þjófnað. Það var ljósmyndari sem kærði hann eftir að þeir áttust við fyrir utan flugvöll í Los Angeles í júlí síðastliðinum.

Rapparinn á að mæta í réttarsal 10. október þar sem kæran verður tekin fyrir.

Í myndbandi frá viðskiptum West og ljósmyndarans sést að rapparinn reyndi að hunsa spurningu ljósmyndarans áður en hann byrjaði að rífast við hann. Eftir það reyndi West að hrifsa myndavélina af honum. Ljósmyndarinn féll til jarðar og rapparinn gekk þá í burtu.

Í svari sem lögfræðingur West sendi dómstólum segist rapparinn nauðsynlega hafa þurft að verja sjálfan sig og því fór sem fór. Ef hann verður fundinn sekur þarf hann að dúsa í fangelsi í mesta lagi eitt ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.