Körfubolti

Odom rýfur þögnina

Odom í leik með Clippers.
Odom í leik með Clippers.
Það er illa komið fyrir körfuboltakappanum Lamar Odom. Hann hefur verið stjórnlaus síðustu vikur. Sagður vera þunglyndur og á kafi í vímuefnaneyslu.

Hann var síðan handtekinn í lok síðasta mánuður fyrir að aka drukkinn. Hans nánustu hafa óttast um hans líf upp á síðkastið.

Odom hefur nú rofið þögnina með því að tjá sig á Twitter en þar hafði hann ekkert tjáð sig í þrjá mánuði.

Á Twitter lætur Odom föður sinn heyra það. Segir að hann hafi aldrei verið til staðar og að móðir hans og amma hafi alið hann upp. "Ég var alinn upp af drottningum," skrifaði Odom.

Odom er giftur Khloe Kardashian og hafa þau hjónin meðal annars verið með raunveruleikaþátt í sjónvarpinu.

"Kardashian-fjölskyldan er eina fólkið sem hefur raunverulega staðið með mér á þessum erfiðu tímum. Ég get engum kennt um nema sjálfum mér. Þið megið segja það sem þið viljið um mig en látið fólkið mitt í friði," sagði Odom einnig á Twitter.

Hann var síðast á mála hjá LA Clippers en er samningslaus í dag og líklega ekki á leiðinni í NBA-deildina strax aftur.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×