Tónlist

Meira væntanlegt frá N.E.R.D.

Pharrell Williams segir að ný plata með hljómsveit hans N.E.R.D. sé væntanleg í náinni framtíð.

Popparinn sló í gegn í sumar sem gestasöngvari í lögunum Get Lucky með Daft Punk og Blurred Lines með Robin Thicke.

Síðasta plata N.E.R.D. kom út árið 2010. "N.E.R.D. er mjög sérstakt verkefni. Maður hendir ekki bara einhverri tónlist út með þeirri hljómsveit. Maður tekur sér góðan tíma og gerir hlutina rétt," sagði hann við Newsbeat hjá BBC.

"Ég er heppnasti náunginn í  hljómsveitinni. Þessir strákar eru ótrúlega svalir."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.