Harmageddon

Emilíana hélt hún væri að deyja

Frosti Logason skrifar
Emilíana er fyrst núna að losna við stressið sem fylgir því að troða upp.
Emilíana er fyrst núna að losna við stressið sem fylgir því að troða upp.
Emilíana Torrini spjallaði við útvarpsþáttinn Harmageddon í morgun. Hægt er að hlusta á viðtalið hér að ofan.

Þáttastjórnendur rifjuðu það upp þegar Emilíana tók þátt í músíktilraunum árið 1993 með hljómsveitinni Tjalz Gissur. Sagan segir að hún hafi einfaldlega kastað upp af stressi baksviðs og verið logandi hrædd við það að fara á svið.

„Já ég hélt bara að ég væri að fara að deyja,“ segir Emilíana en tekur það fram að hún sé fyrst núna, heilum tveimur áratugum síðar, að losna við þetta stress og þann sviðskrekk sem hrjáði hana þá.

Emilíana segir líka frá hliðarverkefni sínu, teknósveitinni Darkness is my Tracksuit og hvernig það hefur haft áhrif á hana sem sóló-listamann.





Hægt er að hlusta á fyrsta smáskífulag af væntanlegri plötu Emilíönu hér að neðan.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.