Tónlist

Stórtónleikar X977 og Bar 11 á Menningarnótt í þriðja sinn

Skálmöld spilar á tónleikum Bar 11 og X977.
Skálmöld spilar á tónleikum Bar 11 og X977.
Stórtónleikar X977 og Bar 11 á Menningarnótt verða haldnir í þriðja sinn annað kvöld.

„Það muna auðvitað allir hvernig þetta var í fyrra,“ segir Össur Hafþórsson á Bar 11, og vísar þar til upptroðslu leikarans Russell Crowe ásamt söngkonunni Patti Smith. „Núna verðum við með stærra svið, stærra hljóðkerfi og stærri bönd.“

Hljómsveitin The Vintage Caravan hefur bæst í hóp þeirra hljómsveita sem koma fram og byrja þeir kvöldið klukkan 19. Á eftir þeim koma svo hljómsveitirnar Halleluwah, Vök, Skepna, Leaves, Dimma og svo að lokum Skálmöld. Verða tvær síðastnefndu sveitirnar með ýmsan varning til sölu meðan á tónleikunum stendur.

Össur lofar góðu stuði og segist sjálfur ekki ætla að missa af einni einustu mínútu. „Maður verður eitthvað að vasast í tengslum við tónleikana en ég ætla að sjá þetta allt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.