Tónlist

Trommari Sabbath of feitur fyrir tónleikaferðalag

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Hljómsveitin árið 2006. Frá vinstri: Bill Ward, Ozzy Osbourne, Tony Iommi og Geezer Butler.
Hljómsveitin árið 2006. Frá vinstri: Bill Ward, Ozzy Osbourne, Tony Iommi og Geezer Butler. mynd/getty
Hljómsveitin Black Sabbath hyggur nú á tónleikaferðalag í haust í kjölfar nýjustu breiðskífu sveitarinnar, 13, en trommari sveitarinnar spilar hvorki á plötunni né á tónleikum sveitarinnar.

Að sögn Ozzy Osbourne, söngvara sveitarinnar, er ástæðan sú að Ward er of feitur. Honum hafi verið gefið tækifæri til að koma sér í form fyrir upptökur plötunnar án árangur, og því hafi hljómsveitin leitað á náðir Brads Wilk, trommara Rage Against the Machine.

„Ég held hann hefði ekki getað farið á tónleikaferðalag,“ segir Osbourne, og segir Ward „í ótrúlegri ofþyngd“.

„Trommuleikari þarf að vera í formi. Hann hefur þegar fengið tvö hjartaáföll. Ég vil ekki bera ábyrgð á dauða hans,“ bætir Osbourne við.

Tony Iommi, gítarleikari sveitarinnar, tekur í sama streng og segir þá hafa viljað bíða eftir trommaranum.

„Við biðum í langan tíma eftir Bill, enda langaði okkur að láta þetta ganga upp. En að lokum gáfumst við upp. Sérstaklega eftir að ég greindist með krabbamein. Ég sendi honum tölvupóst og sagði að við gætum ekki beðið lengur. Og þannig endaði það.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.