Tónlist

Haffi Haff umkringdur fyrirsætum í nýju myndbandi

Haffi Haff og félagar fara á kostum í nýja myndbandinu.
Haffi Haff og félagar fara á kostum í nýja myndbandinu.
Vísir frumsýnir hér glænýtt myndband frá Haffa Haff við partíslagarann Speechless.

Honum til halds og trausts eru Siggi úr Ultra Mega Technobandinu Stefán og fjöldinn allur af fyrirsætum frá Elite.

Þetta er fyrsta lagið og myndbandið sem Haffi sendir frá sér í nokkurn tíma.

Leikstjóri myndbandsins er Eric Heimbold en hann er heimsfrægur fyrir auglýsingar sínar og myndbönd, leikstýrði meðal annars klassíska stuðmyndbandinu við lagið Who Let The Dogs Out?

Myndbandið er tekið upp í samstarfi við tískuumboðsskrifstofuna Elite og tónlistarumboðið Artist Anonymous en á bak við það standa Haffi Haff, Siggi Ultra, Gunnar Karl umboðsmaður og upptökustjórinn Steinar Jónsson, sem sá um eftirvinnslu myndbandsins.

Hægt er að sjá myndbandið í spilaranum hér fyrir neðan og á sjónvarpssíðu Vísis.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.