Bílar

Avis kaupir Payless bílaleiguna

Finnur Thorlacius skrifar
Stærri bílaleigufyrirtækin eru að kaupa þau minni
Stærri bílaleigufyrirtækin eru að kaupa þau minni
Samþjöppun á bílaleigumarkaðnum heldur áfram út í heimi og í gær keypti bílaleigurisinn Avis Budget Group bílaleiguna Payless. Ekki er langt síðan Avis keypti bílaleiguna Zipcar fyrir 61 milljarð króna, en nú þurfti Avis aðeins að punga út 6,1 milljarði.

Vafalaust eru þessi kaup til þess ætluð að standa uppí hárinu á Hertz sem keypti nýverið Dollar-Thrifty bílaleiguna. Meiningin er að reka Payless áfram sem sjálfstætt fyrirtæki og halda nafninu.

Payless mun styrkja Avis á markaði fyrir ódýra og millidýra bílaleigubíla og auka styrk hins sameiginlega fyrirtækis við innkaup nýrra bíla. Velta Avis Budget Group í fyrra var 900 milljarðar króna.






×