Lífið

Brad hefur áhyggjur – Angelina bara 42 kíló

Stórleikarinn Brad Pitt hefur miklar áhyggjur af unnusti sinni Angelinu Jolie en hún er orðin óhugnalega létt.

Angelina hefur verið undir miklu álagi síðan hún lét fjarlægja bæði brjóstin og er aðeins 42 kíló.

Brad hefur áhyggjur af Angelinu sinni.
“Þetta er versta martröð Brads. Angelina er búin að vinna mjög mikið að undanförnu að kvikmyndaverkefnum og fyrir Sameinuðu þjóðirnar og það hefur tekið sinn toll. Hún er léttari núna en þegar hún var sextán ára og Brad er hræddur um að hún verði ekki nógu sterk þegar kemur að því að fjarlægja eggjastokkana hennar,” segir heimildarmaður National Enquirer.

Angelina á faraldsfæti.
Það að Angelina láti fjarlægja bæði brjóst sín og eggjastokka er fyrirbyggjandi aðgerð. Móðir Angelinu lést úr brjóstakrabbameini og er stjarnan með sama genamengi og móðir sín, BRCA1, sem eykur líkur á brjóstakrabbameini til muna.

Hjón sem tekið er eftir.
Dragðu Tarotspil dagsins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.