Sport

Kristinn fékk silfur og Þorsteinn brons

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Anton

Kristinn Torfason hafnaði í öðru sæti í langstökkskeppni Smáþjóðaleikanna í Lúxemborg í dag.

Kristinn stökk 7,27 metra og var aðeins einum sentimetra á eftir sigurvegaranum. Þorsteinn Ingvarsson stökk 7,14 metra og landaði bronsverðlaunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×