Körfubolti

Takk strákar

Baldur Beck skrifar
George Hill fagnar í fjórða leik liðanna.
George Hill fagnar í fjórða leik liðanna. Nordicphotos/Getty

Við ætlum ekki að fara mörgum orðum um fjórða leik Miami og Indiana í úrslitaeinvígi Austurdeildarinnar. Við þurfum þess ekki. Indiana varð að vinna þennan leik, sérstaklega í ljósi þess hvernig fór í vestrinu. Við viljum ekki sjá sóp (4-0) og herramannasóp (4-1) í undanúrslitarimmunum. Það væri bara glatað. Lokatölurnar urðu 99-92.

Indiana slapp ekki aðeins við að lenda undir 3-1 og eiga næsta leik á útivelli, heldur er liðið nú búið að jafna metin í seríunni - sem er allt í einu orðin galopin á ný. Það er ekkert stórfurðulegt að Indiana hafi unnið þennan leik. Þeir áttu inni að spila betur en í leik þrjú og Miami gat fjandakornið ekki haldið áfram að hitta eins og það gerði í leiknum á undan.

Nú er því tryggt að við fáum amk eina undanúrslitarimmu sem verður spennandi og á meðan safna Tim Duncan og félagar í San Antonio ryki heima í Texas. Sjá fram á níu eða tíu daga frí.

Þegar Indiana vinnur Miami, er það af því liðið leikur góða vörn (39% hittni hjá Heat), frákastar vel (+19) og fær gott stigaframlag frá Lance Stephenson (20 stig,  9 af 15 í skotum). Svo var sláninn okkar Roy Hibbert líka að standa sig, bauð upp á þriðja 20/10 leikinn í röð og hirti sóknarfráköstin sem tryggðu Pacers sigurinn í nótt.

Það er skammt stórra högga á milli. Eftir öruggan sigur Miami í þriðja leiknum, sáu margir ekki fram á að liðið myndi tapa öðrum leik í þessu einvígi og Indiana átti að vera alveg búið á því. Sem betur fer var það ekki þannig og heimamenn kipptu því í liðinn sem þeir þurftu að laga fyrir fjórða leikinn. Þessi sería búin að vera hin besta veisla og ætlar að vera það áfram. Sérdeilis prýðilegt.

Fimmti leikur Indiana og Miami Heat fer fram í nótt. Bein útsending á Stöð 2 Sport hefst klukkan 0.30.

Baldur Beck er körfuboltalýsandi á Stöð 2 Sport. Hann heldur úti vefsíðunni NBA Ísland.

NBA

Tengdar fréttir

Besta sýning á jörðinni

Það er ekki við Indiana að sakast en Miami er nú mætt í úrslitakeppnina árið 2013. Miami vélin þurfti smá ræsingarúða eins og gamall Nalli, en naumur sigur í fyrsta leik og tap í öðrum gegn Pacers á heimavelli var það eina sem þurfti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×