San Antonio komið í 2-0 Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. maí 2013 07:16 Mynd/AP
Tony Parker var magnaður í mikilvægum sigri San Antonio á Memphis, 93-89, í framlengdum leik í lokaúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Þar með er San Antonio komið í 2-0 forystu í rimmunni eftir tvo sigra á heimavelli. Næsti leikur fer fram í Memphis á laugardag. San Antonio hafði mikla yfirburði framan af leik og náði mest átján stiga forystu. Ekkert gekk hjá Memphis sem var með skelfilega skotnýtingu, sérstaklega í fyrri hálfleik. En gestirnir bitu í skjaldarrendur og náðu að jafna metin í fjórða leikhluta eftir góðan sprett. Tim Duncan klikkaði á skoti í lokasókninnni og því þurfti að framlengja. Þar tóku Parker, Duncan og félagar völdin á ný og unnu fjögurra stiga sigur. Parker var með fimmtán stig alls en átján stoðsendingar sem er persónulegt met hjá honum, hvort sem er í leik í deilar- eða úrslitakeppninni. Memphis þekkir þessa stöðu vel því liðið hefur lent undir í öllum þremur rimmum sínum í úrslitakeppninni. „Við erum í sömu stöðu og gegn LA Clippers. Nú þurfum við bara að fara heim og klára okkar mál. Það verður ekki auðvelt en þetta er bara staðan,“ sagði Lionel Hollins, þjálfari Memphis. Duncan var stigahæstur í liði San Antonio með sautján stig en hann tók níu fráköst. Mike Conley og Jerryd Bayless skoruðu átján stig hvor fyrir Memphis en Zach Randolph fimmtán.
NBA Mest lesið Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Refsing fyrir að blóta gæti flýtt fyrir því að Verstappen hætti Formúla 1 Clark slegin í augað í frumraun Körfubolti Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira