Körfubolti

Indiana beit frá sér

James gengur hér af velli með sex villur.
James gengur hér af velli með sex villur.

Indiana Pacers ætlar ekki að hleypa meisturum Miami Heat áfram í úrslitin án þess að hafa fyrir því. Liðin mættust í enn einum hörkuleiknum í nótt og hafði Indiana betur, 99-92.

Staðan í einvíginu er því jöfn, 2-2, en vinna þarf fjóra leiki til þess að komast í úrslit. San Antonio er þegar komið í úrslit og fær góða hvíld fram að úrslitaeinvíginu.

Roy Hibbert skoraði 23 stig fyrir Indiana í nótt og Lance Stephenson 20.

LeBron James skoraði 24 stig fyrir Miami en fór af velli undir lokin með sex villur. Mario Chalmers skoraði 20 og Dwyane Wade 16.

Lykillinn að sigri Indiana í nótt voru körfur inn í teig en þar var Indiana að vinna 50-32 og munar um minna.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×