San Antonio náði forystunni á ný Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. maí 2013 07:00 Nordiic Photos / Getty Images
Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. San Antonio og Indiana unnu þá sigra á heimavelli. San Antonio hafði betur gegn Golden State, 109-91, og náði þar með undirtökunum í rimmunni á ný eftir að hafa tapað framlengdum leik um helgina. Staðan er nú 3-2 en Golden State á næsta leik á heimavelli. Leikmenn San Antonio höfðu mikið fyrir sigrinum en mestu munaði að Stephen Curry skoraði aðeins níu stig í leiknum í nótt. Hinn skotbakvörðurinn í byrjunarliði Golden State, Klay Thompson, skoraði aðeins fjögur stig. „Ég var hræðilegur, svo ekki sé meira sagt,“ sagði Curry eftir leikinn. „Þeir yfirspiluðu okkur sem lið.“ Tony Parker átti stórleik fyrir San Antonio en hann skoraði 25 stig auk þess að gefa tíu stoðsendingar. Hann nýtti níu af sextán skotum sínum og tapaði boltanum aðeins tvisvar. Nýliðinn Harrison Barnes skoraði 25 stig fyrir Golden State og Jarret Jack var með 20. Indiana vann New York og er komið í 3-1 forystu. George Hill skoraði 26 stig og Paul George var með átján stig, fjórtán fráköst og sjö stoðsendingar. Þess má geta að kempurnar Reggie Miller og Rik Smits voru báðir í húsinu en þeir voru lykilmenn í frægum rimmum þessara liða á tíunda áratugnum. Það var fyrst og fremst varnarleikur Indiana sem skóp sigurinn og hélt New York í skefjum í seinni hálfleik. Carmelo Anthony skoraði 24 stig fyrir New York en ekkert á síðustu tólf mínútum leiksins.
NBA Mest lesið Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Refsing fyrir að blóta gæti flýtt fyrir því að Verstappen hætti Formúla 1 Clark slegin í augað í frumraun Körfubolti Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira