Körfubolti

Denver og Memphis með sterka sigra

Chris Paul og félagar eru í erfiðum málum.
Chris Paul og félagar eru í erfiðum málum.
Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt. Denver og Memphis unnu þá fína sigra. Denver bjargaði tímabilinu með því að berja hraustlega frá sér gegn Golden State í nótt. Andre Igoudala með 25 stig, 12 fráköst og 7 stoðsendingar. Ty Lawson og Wilson Chandler báðir með 19 stig.

Harrison Barnes stigahæstur hjá Warriors með 23 stig og Jarrett Jack skoraði 20.

Zach Randolph var í ham hjá Memphis gegn Clippers og skoraði 25 stig og tók 11 fráköst í frábærum sigri liðsins gegn Clippers.

Úrslit (Staðan í einvíginu):

Denver-Golden State  107-100 (2-3)

LA Clippers-Memphis  93-103 (2-3)



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×