Körfubolti

Howard þarf ekki að fara í aðgerð

Það er nú orðið ljóst að miðherjinn Dwight Howard þarf ekki að fara í aðgerð vegna axlarmeiðslanna sem hafa verið að plaga hann í dágóðan tíma.

LA Lakers staðfesti það í dag en læknar liðsins hafa skoðað Howard ítarlega síðustu daga.

"Ég mun gera allt sem ég get til þess að ná mér góðum í sumar," sagði Howard en hann gat ekkert æft síðasta sumar þar sem hann fór í bakaðgerð.

Howard meiddist í byrjun janúar á öxlinni og hefur ekki verið góður síðan. Ekki er ljóst hvort hann verði áfram í herbúðum Lakers næsta vetur.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×