Íslenski boltinn

Gervigras fyrir konurnar í þremur leikjum af fimm

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Anna María Baldursdóttir og Sandra María Jessen á Samsung-vellinum síðastliðið sumar.
Anna María Baldursdóttir og Sandra María Jessen á Samsung-vellinum síðastliðið sumar.
Aðeins tveir leikir af fimm í 1. umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu fara fram á grasi. Heil umferð fer fram í kvöld.

Veðuraðstæður fyrir norðan gera það að verkum að Íslandsmeistarar Þórs/KA taka á móti FH í knatthúsinu Boganum. Þór/KA vann sigur á Stjörnunni í leik Íslandsmeistara gegn bikarmeisturum á dögunum á sama stað.

Norðankonur verða án Söndru Maríu Jessen í leiknum í kvöld en markamaskínan er að jafna sig eftir meiðsli.

Á gervigrasvelli Stjörnunnar í Garðabænum mæta Eyjakonur í heimsókn. Þeim bláklæddu var spáð Íslandsmeistaratitlinum á dögunum og eiga harma að hefna frá viðureign liðanna í Lengjubikarnum á dögunum. Þá vann ÍBV 1-0 sigur en ÍBV tapaði öllum öðrum leikjum sínum í keppninni. Á hinn bóginn var tapið hið eina hjá Stjörnunni sem stóð uppi sem sigurvegari í keppninni.

Flautað verður til leiks fyrir norðan og í Garðabæ klukkan 18.

Á gervigrasvellinum í Laugardal taka nýliðar Þróttar á móti Selfossi. Flestir eru á því að Þróttur muni eiga erfitt uppdráttar í sumar en Selfyssingar eru reynslunni ríkari eftir síðasta tímabil.

Að Hlíðarenda og í Fossvoginum verður spilað á grasi. Valur tekur á móti Aftureldingu á Vodafone-vellinum og á Víkingsvelli taka nýliðar HK/Víkings á móti Breiðablik.

Flautað verður til leiks í Laugardal, Valsvelli og Víkingsvelli klukkan 19.15.


Tengdar fréttir

Skarð Gunnhildar Yrsu vandfyllt

„Við vitum að við verðum í toppbaráttunni og stefnan verður að sjálfsögðu sett á titilinn,“ segir Harpa Þorsteinsdóttir framherji Stjörnunnar. Stjarnan varð Íslandsmeistari sumarið 2011 en missti titilinn í hendur Þórs/KA síðastliðið sumar. Það var sárabót að Garðbæingar urðu bikarmeistarar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×