Íslenski boltinn

Þrennan hennar Hörpu í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Harpa Þorsteinsdóttir átti stórleik með Stjörnunni í 3-0 sigri á ÍBV á Samsung-vellinum í fyrstu umferð Pepsi-deildar kvenna í kvöld en leikurinn var í beinni útsendingu á Vísi.

Harpa hóf tímabilið á því að skora þrennu en hún skapaði ítrekað stórhættu upp við mark Eyjaliðsins í þessum leik og átti meðal annars tvö skot í slá Eyjamarksins.

Harpa skoraði tvö mörk í fyrri hálfleiknum og innsiglaði síðan þrennuna í uppbótartíma leiksins.

Hér fyrir ofan má sjá svipmyndir frá leiknum í kvöld sem var sá fyrsti af mörgum sem verða í beinni útsendingu á Vísi í sumar.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×