Körfubolti

Miller gamli sá um Golden State

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Andre Mills hafði mest skorað 22 stig í leik í vetur. Hann gerði sex stigum betur í gærkvöldi.
Andre Mills hafði mest skorað 22 stig í leik í vetur. Hann gerði sex stigum betur í gærkvöldi. Nordicphotos/AFP
Hinn 37 ára gamli Andre Miller tryggði Denver Nuggets 97-95 sigur á Golden State Warriors í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni NBA í gærkvöldi.

Leikur liðanna í Denver var æsispennandi en Denver hefur verið afar erfitt heim að sækja í háloftin í vetur. Heimamenn leiddu 48-44 í leikhléi og höfðu sjö stig í forskot fyrir lokaleikhlutann.

Andre Miller fór á kostum hjá heimaliðinu. Gamli maðurinn skoraði 28 stig . Þau mikilvægustu komu 1,3 sekúndu fyrir leikslok eftir að þriggja stiga skyttan Stephen Curry jafnaði í 95-95 með þrist er 14 sekúndur lifðu leiks. Miller fékk þá boltann í hendurnar og á háréttum tíma keyrði hann í áttina að körfunni og lagði boltann snyrtilega á sinn stað.

„Ég hef aldrei skorað sigurkörfu í lok leiks. Ég hef fengið boltann nokkrum sinnum en ýmist klikkað á skotinu eða tapað boltanum“ sagði Miller hógværðin uppmáluð á blaðamannafundi eftir leikinn.

New York Knicks lagði Boston Celtics í fyrsta leik úrslitakeppninnar í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í gærkvöldi. Umfjöllun um leikinn má lesa hér.

Aðrir leikir í nótt:

Brooklyn Nets 106-89 Chicago Bulls

Brooklyn leiðir 1-0

L.A. Clippers 112-91 Memphis Grizzlies

Clippers leiðir 1-0

Allir leikir gærkvöldsins unnust á heimavelli.

Leikir kvöldsins:

Indiana Pacers - Atlanta Hawks

San Antonio Spurs - Los Angeles Lakers

Miami Heat - Milwaukee Bucks

Oklahoma City Thunder - Houston Rockets

NBA

Tengdar fréttir

Getur einhver stöðvað þennan mann?

Úrslitakeppnin í NBA-deildinni í körfubolta hefst í dag og það er bara ein spurning sem ­skiptir máli: Getur einhver ­stöðvað LeBron James og meðreiðarsveina hans í liði Miami Heat?

Carmelo Anthony frábær í sigri Knicks

Carmelo Anthony fór á kostum þegar New York Knicks tók forystu gegn Boston Celtics með 85-78 sigri í Maddison Square Garden í New York í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×