Körfubolti

Ég er þreyttur á öðru sæti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kevin Durant er á forsíðu nýjasta heftis Sports Illustrated í Bandaríkjunum og segist þar vera orðinn dauðþreyttur á því að vera í öðru sæti.

Durant leikur með Oklahoma City sem tapaði fyrir Miami í lokaúrslitum NBA-deildarinnar síðastliðið tímabil.

„Ég hef verið í öðru sæti allt mitt líf,“ sagði Durant. „Ég var næst leikmaðurinn í menntaskóla (e. high schoool), var annar í nýliðavali NBA-deildarinnar, hef þrisvar verið í öðru sæti í kjöri leikmanns ársins og var í öðru sæti í úrslitakeppninni fyrra.“

„Ég ætla ekki að sætta mig við þetta lengur. Ég er buínn að fá nóg af þessu.“

LeBron James er óumdeilanlega besti leikmaður NBA-deildarinnar í dag en Durant ætlar sér engu að síður að komast á toppinn. Hluta viðtalsins má lesa hér.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×