Svíar með tvo NBA-leikmenn á EM í haust Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. apríl 2013 15:15 Jonas Jerebko. Mynd/AP
Svíar eru til alls líklegir á EM í körfubolta sem fer fram í Slóveníu í haust því allt stefnir í að liðið tefli fram tveimur NBA-leikmönnum á mótinu. Jeffery Taylor hefur gefið það út að hann verði með liðinu og þá vonast Svíar eftir að Jonas Jerebko verði líka með. Jeffery Taylor er 23 ára gamall og 201 sm hár framherji sem spilar með Charlotte Bobcats. Taylor er á sínu fyrsta tímabili í deildinni en hann lék með Vanderbilt-háskólanum frá 2008 til 2012. Taylor er með 6,1 stig og 1,9 frákast að meðaltali á 19,5 mínútum í NBA-deildinni í vetur. „Ég hef lengi stefnt á það að spila með landsliðinu á móti bestu landsliðum Evrópu og það er flott að þetta sé að ganga upp," sagði Jeffery Taylor í fréttatilkynningu. Faðir Jeffery Taylor var NBA-leikmaður sem settist að í Svíþjóð. Jonas Jerebko er 26 ára og 208 sm framherji sem spilar með Detroit Pistons. Hann er á sínu þriðja tímabili í NBA-deildinni. „Jonas vill spila með landsliðinu og ég reikna með honum. Við þurfum samt að ganga frá nokkrum praktískum hlutum fyrst," sagði Jonte Karlsson, þjálfari sænska landsliðsins. Jonas Jerebko er með 7,7 stig og 3,7 fráköst að meðaltali á 18,1 mínútu í NBA-deildinni í körfubolta á þessu tímabili.
NBA Mest lesið Andri Rafn fimmti í þrjú hundruð leikja klúbbinn Íslenski boltinn „Erfitt að spila á móti liði sem fær þrjár villur í seinni“ Körfubolti Hvergerðingar í úrslit umspilsins Körfubolti Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Enski boltinn KA Íslandsmeistari og tók alla titlana Sport Dagskráin í dag: Bónus, Besta og Stúkan á Sumardaginn fyrsta Sport Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Fyrirliðinn kom heimamönnum til bjargar Íslenski boltinn Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Enski boltinn Embla og Eva Björk í ham þegar Stjarnan komst yfir Handbolti „Adam Ægir hefði alveg mátt gefa á mig“ Fótbolti Fleiri fréttir „Erfitt að spila á móti liði sem fær þrjár villur í seinni“ Hvergerðingar í úrslit umspilsins „Þjöppuðum okkur saman og kláruðum þetta“ Jón Axel og félagar upp í spænsku úrvalsdeildina Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 73-76 | Njarðvíkur-sigur í spennutrylli Tryggvi Evrópumeistari með Bilbao Basket Fyrrum nýliði ársins í NBA reynir fyrir sér í hnefaleikum „Þessar stelpur kalla ekki allt ömmu sína“ „Vonandi nær maður að grípa í einn svona bikar“ Hörður undir feldinn Luka öflugur og Lakers jafnaði einvígið Sektaður um sex milljónir fyrir að tala um getnaðarlim sinn „Við töpum boltanum í annarri hverri sókn“ Uppgjörið: Valur - Haukar 80-82 | Köstuðu sigrinum frá sér og klikkuðu á vítunum „LeBron þarf að fara í P. J. Washington hlutverkið“ Stólarnir afar öflugir þegar glittir í lokaúrslitin Einhentur en ætlar í nýliðaval NBA Nico Harrison: Áttaði mig ekki á hversu sterk ást þeirra á Luka var Falko áfram í Breiðholtinu Enduðu fimmtán leikja taphrinu í úrslitakeppni NBA „Bara einn leikur og áfram með smjörið“ KR sópaði Hamar/Þór og leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð „Stemmningin í húsinu hjálpar“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 108-100 | Stjarnan skrefinu á undan Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 100-78 | Ótrúlegur sigur Stólanna Valur og KR unnu Scania Cup Warriors vann leik sem var eins og frá 1997 „Langaði að bæta nálgun mína á körfubolta“ Doncic og James byrjuðu á tapi á heimavelli Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin Sjá meira