Körfubolti

Arenas ánægður í Kína

Arenas segir félaga sínum, Liu Wei, til.
Arenas segir félaga sínum, Liu Wei, til.
Gilbert Arenas var eitt sinn stjörnuleikmaður í NBA-deildinni. Allt frá því hann kom með byssur í búningsklefann hefur ferill hans verið á niðurleið.

NBA-ferillinn er í dag á enda og ekkert lið hafði áhuga á að skoða hann fyrir tímabilið. Þetta er leikmaður sem hefur spilað þrjá stjörnuleiki.

Þá voru góð ráð dýr fyrir leikmanninn. Hann fór því til Kína eins og margir forverar hans sem hafa lokið keppni í NBA-deildinni. Þar hefur hann verið að spila með Shanghai Sharks.

"Ég fékk ekkert að spila lengur hjá liðunum sem ég var hjá í NBA-deildinni. Þá spurði ég mig að því hvort ég nennti þessu? Svarið var nei. Ég fór því til Kína því ég vildi spila körfubolta," segir Arenas en hann hefur gefið NBA-draumana upp á bátinn.

"Hér get ég verið með fjölskyldunni eftir tímabilið. Krakkarnir mínir eru að verða eldri og þegar maður er í NBA-deildinni hefur maður ekki tíma til þess að sinna fjölskyldunni. Mér líður vel í Kína og ég ætla að vera þar áfram."



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×