Bílar

Strætóbílstjórar í kappakstri reknir

Finnur Thorlacius skrifar
Gaman um stund en síðan reknir
Gaman um stund en síðan reknir
Börn sem sátu í skólabílunum klöguðu bílstjórana.

Skólastjóranum í grunnskóla í Des Moines í Bandaríkjunum var ekkert sérlega skemmt yfir kappakstrinum sem tveir bílstjórar skólabíla skólans stunduðu um daginn. Svo lítið reyndar að hann rak þá báða. Bílstjórarnir voru að aka börnunum heim frá skólaskemmtun á Valentínusardeginum.

Í fyrstu var börnunum í skólabílunum skemmt en þegar leikar fóru að æsast varð þeim ekki um sel og báðu bílstjórana að hætta leiknum, en án árangurs. Þau klöguðu bílstjórana í kjölfarið með áðurnefndum afleiðingum. Bílstjórarnir verða þó ekki kærðir til lögreglu, enda erfitt að sanna sök þeirra án mælinga eða fullorðinna vitna.






×