Körfubolti

NBA í nótt: Lakers vann fyrsta leikinn eftir andlát eigandans

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Leikmenn Lakers minnast Buss fyrir leikinn.
Leikmenn Lakers minnast Buss fyrir leikinn. Mynd/AP
LA Lakers heiðraði minningu Jerry Buss, eiganda félagsins, með sigri á Boston Celtics, 113-99, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.

Dwight Howard átti góðan leik fyrir Lakers en hann var stigahæstur með 24 stig auk þess sem hann tók tólf fráköst. Kobe Bryant var með sextán stig og sjö stoðsendingar.

Buss hefði sjálfsagt notið þess að sjá sína menn spila í nótt, ekki síst í sigurleik gegn gömlu erkifjendunum í Boston. Buss lést á mánudag eftir átján mánaða langa baráttu við krabbamein, 80 ára gamall.

Paul Pierce skoraði 26 stig fyrir Boston og Courtney Lee var með 20 stig.

Lakers er þó enn nokkrum sigrum frá því að komast í áttunda og síðasta sæti Vesturdeildarinnar sem tryggir sæti í úrslitakeppninni í vor. Lakers er í níunda sæti deildarinnar með 26 sigra og 29 töp. Boston er í sjöunda sæti Austurdeildarinnar.

Indiana vann New York, 125-91, í toppslag Austurdeildarinnar. Liðin eru í öðru og þriðja sæti deildarinnar, á eftir meisturunum í Miami, en með sigrinum færðist Indiana nær því að ná öðru sætinu af New York.

Paul George var með 27 stig fyrir Indiana og David West átján stig. Hjá New York var Tyson Chandler stigahæstur með nítján stig.

Houston vann Oklahoma, 122-119, þar sem James Harden reyndist sínum gömlu félögum erfiður. Hann skoraði 46 stig en Harden kom frá Oklahoma til Houston fyrir núverandi tímabil.

Harden bætti persónulegt met með stigaskorinu en næstur á eftir honum kom Jeremy Lin með 29 stig.

Houston var fjórtán stigum undir þegar sjö mínútur voru eftir af leiknum enn náði að tryggja sér sigurinn með frábærum lokaspretti.

Miami vann Atlanta, 103-90, þar sem LeBron James var með 24 stig. Miami hefur nú unnið átta leiki í röð.

Úrslit næturinnar:

Toronto - Memphis 82-88

Charlotte - Detroit 99-105

Indiana - New York 125-91

Cleveland - New Orleans 105-100

Atlanta - Miami 90-103

Milwaukee - Brooklyn 94-97

Houston - Oklahoma City 122-119

Minnesota - Philadelphia 94-87

Dallas - Orlando 111-96

LA Lakers - Boston 113-99

Golden State - Phoenix 108-98

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×