Tíska og hönnun

Skiptast á að vera naktar

Söngkonan Rihanna og ofurfyrirsætan Kate Moss eru ansi reffilegar á myndum sem birtast í nýjasta hefti tímaritsins V Magazine. Myndirnar voru teknar af ljósmyndaranum Mario Testino og er ákveðið S&M-þema í gangi.

Tvær forsíður eru á blaðinu – á öðru er Rihanna nakin en Kate í fötum og á hinni skipta þær um hlutverk.

Rihanna nakin.
Kate heimtaði að fá að vera með Rihönnu í myndatöku fyrir stuttu þegar hún heyrði Mario og Rihönnu tala saman.

"Ég vil gera það með þér!" sagði hún æst í stjörnuteiti. Rihanna tók afar vel í hugmyndina.

Kate nakin.
"Ég spurði hana hvort hún væri að grínast. Ég var að deyja inni í mér. Allir mínir draumar voru að rætast. Mario, V, Kate Moss."

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×