Tíska og hönnun

Glys og glamúr í Óskarspartýi

Það var mikið um dýrðir þegar Óskarsverðlaunin voru veitt í Los Angeles í gærkvöldi. Eftir hátíðina hélt gleðin svo áfram en margómuð Óskarspartý voru á hverju strái. Flestar leikkonurnar skiptu um föt og skörtuðu glænýjum og glæsilegum klæðnaði þegar í partýin var komið. Hér eru nokkrar stjörnur í partýgallanum í teiti hjá Vanity Fair.

Jennifer Lawrence skipti yfir í þennan fallega silfurkjól frá Calvin Klein.
vinkonurnar Amanda Seyfried og Samantha Barks voru innilegar.
Anne Hathaway fór úr fölbleika Prada kjólnum sem hún klæddist á hátíðinni yfir í þennan kjól frá Sait Laurent.
Lily Collins í guðdómlegum kjól frá Zuhair Murad.
Jane Fonda var glæsileg.
Kate Bosworth í stuttum kjól frá Giambattista Valli sem klæddi hana afar vel.
Amy Adams í Oscar de la Renta.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×