Tíska og hönnun

Háa klaufin snýr aftur

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Gólfsíðir kjólar með hárri klauf eru tískustraumur sem legið hefur í dvala í nokkurn tíma. Trendið er oft kennt við leikkonuna Angelinu Jolie, en hún hefur verið mjög dugleg við að klæðast slíkum kjólum í gegnum tíðina. Þó að háa klaufin sé afar umdeild og ýmsir tískuspekúlantar líti hana miklu hornauga er hún að snúa aftur ef marka má rauða dregilinn á verðlaunahátíðum síðustu misseri. Hér sjáum við nokkur dæmi.

Naomie Harris tók trendið alla leið á Óskanum, en klaufin var að mati margra allt of há.
Jennifer Hudson mætti einnig á Óskarinn í kjól með klauf frá Roberto Cavalli.
Jessie J sýnir leggina í rauðum kjól með hárri klauf í fyrra.
Rihanna skartar hárri klauf.
Katrín hertogaynja hefur tileinkað sér trendið.
Kelly Rowland í kjól frá Donna Karan.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×