Tíska og hönnun

Besta hárið og farðanirnar á Óskarnum

Stjörnurnar eru alltaf teknar út frá toppi til táar þegar þær mæta á rauða dregilinn fyrir Óskarsverðlaunin. Hárið og farðanirnar skipta ekki minna máli en kjólarnir og allt setur þetta sinn svip á heildarlúkkið. Hér eru þær stjörnur sem þóttu best farðaðar og greiddar þetta árið.

Jennifer Lawrence var með rómantíska hágreiðslu, ljósgrátt smókí og ljósan varalit.
Amanda Seyfried var með skemmtilega uppsett hár, fjólubláan augnskugga og ljósan varalit. Stórglæsileg!
Charlize Theron þótti að margra mati bera af með þessari látlausu og fallegu förðun. Stutta hárið fer henni afar vel.
Kerry Washingon fór líka látlausu leiðina og tókst vel til. Falleg förðum með áherslu á augnhárin og fallegir liðir í hárinu.
Reese Witherspoon geislaði og leyfði bláu augunum að njóta sín með einfaldri augnförðun og bleikum varalit. Hárið var fallega liðað.
Anne Hathaway var með stutta hárið greitt til hliðar og bleikan látlausan varalit við bleika Pradakjólinn sinn. Falleg heild.
Jessica Chastain var með hágreiðslu í gömlum Hollywood stíl, fallegan eyeliner og rauðan varalit. Klassísk og falleg.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×