Loks dísilknúinn Malibu 13. febrúar 2013 08:45
Er óvenju ríkulega búinn bíll og hefur útlitseinkenni Chevrolet Camaro. Í nokkurn tíma hefur Bílabúð Benna haft í sölu Chevrolet Malibu, en aðeins með bensínvél. Nú er loks Chevrolet Malibu með 2,0 lítra dísilvél sem afkastar 160 hestöflum og hefur ríflegt 350 Nm hámarkstog. Beðið hefur verið eftir Malibu með dísilvél enda eyðir sá aðeins 6 lítrum á hundraðið í blönduðum akstri. Bíllinn er boðinn sjálfskiptur og hlaðinn staðalbúnaði. Malibu er stór fimm manna fólksbíll sem býður upp á mikið farangursrými, eða 545 lítra. Útlitshönnunin byggir að hluta til á hinum sportlega Camaro sem margir bílaáhugamenn þekkja af góðu. Í staðalgerð kemur hann með nokkuð ríkulegan búnað, svo sem lyklalaust aðgengi og ræsihnapp, leðurklædd sæti, rafknúna topplúgu, rafknúin sæti með minni, bakkskynjara, Xenon aðalljós, 18" álfelgur, hita í framsætum og regnskynjara. Malibu kemur með þriggja rima leðurstýri með aðdrætti og veltu, stjórnrofum fyrir upplýsinga- og afþreyingarkerfi og sérstaklega formuðu stýri sem stuðlar að nákvæmari stýringu. Malibu státar einnig af bestu hljóðeinangruninni í stærðarflokknum. Upplýsinga- og afþreyingarkerfi bílsins fylgir 7" snertiskjár í lit, níu hátalarar, Bluetooth tenging ásamt tengingum fyrir Aux, SD og USB. Dísilgerð bílsins er kynnt þessa dagana hjá Bílabúð Benna og kostar hann í þeirri gerð 5.990.000 kr.
Mest lesið Mexíkó og Kanada svara tollum Trump með sínum eigin Erlent Segir ljóst að Sigurjón skorti hæfi Innlent Hviður yfir 40 metra á sekúndu á morgun Veður Kennarar með viðbótarkröfur og fundi frestað Innlent Ók á móti umferð á flótta frá lögreglunni Innlent Pálína 84 ára stendur vaktina alla daga á Landvegamótum Innlent Klakastykki stórskemmdi bíl Innlent Hagræðingartillögur, styrkir til flokkanna og Grænland á Sprengisandi Innlent Allir farþegarnir látnir Erlent Íslendingar fá leiðbeiningar um viðbrögð við stríði Innlent