Körfubolti

LeBron í stuði í nótt | Fimm í röð hjá Knicks

Fjölmargir leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt. LeBron James fór á kostum í sigri Miami Heat á Charlotte og skoraði 31 stig ásamt því að taka átta fráköst og gefa átta stoðsendingar.

Chris Bosh var einng sterkur annan leikinn í röð og skoraði 23 stig. Dwyane Wade var ekki að hitta vel en endaði með 20 stig engu að síður.

NY Knicks vann sinn fimmta leik í röð þar sem Carmelo Anthony skoraði 27 stig og tók 7 fráköst. Amare Stoudemire skoraði 20 stig og JR Smith 16.

Úrslit:

Indiana-Chicago 111-101

Philadelphia-Orlando 78-61

Washington-LA Clippers 98-90

NY Knicks-Detroit 99-85

Miami-Charlotte 99-94

Oklahoma-Dallas 112-91

Minnesota-Portland 89-100

Utah-Sacramento 98-91 (e. frl.)



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×