Körfubolti

Kobe heitur | Þriggja stiga met hjá Houston

LA Lakers er að rétta smám saman úr kútnum í NBA-deildinni og liðið vann fínan sigur í Brooklyn í nótt með Kobe Bryant fremstan í flokki.

Kobe skoraði 21 og skoraði allar stóru körfurnar fyrir Lakers þegar á þurfti að halda undir lokin. Earl Clark kom á óvart með 14 stigum og 12 fráköstum. Pau Gasol meiddist í leiknum en þau meiðsli eru líklega ekki alvarleg. Brook Lopez atkvæðamestur hjá Nets og á vellinum með 30 stig.

Houston setti upp þriggja stiga sýningu gegn Golden State og skoraði heil 140 stig. Houston jafnaði met með því að skora úr 23 þriggja stiga skotum. Houston vann þriggja stiga keppnina í leiknum 69-9.

Jeremy Lin skoraði 28 stig og gaf 9 stoðsendingar í liði Houston. James Harden skoraði 18 stig, gaf 7 stoðsendingar og stal þrem boltum

Úrslit:

Atlanta-Indiana 103-114

LA Lakers-Brooklyn 92-83

Memphis-Phoenix 90-96

Houston-Golden State 140-109

Denver-Milwaukee 112-104

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×