Körfubolti

Gasol frá í sex vikur

Tímabilið hefur verið eintómt basl hjá LA Lakers. Um leið og það fer að birta til þá hefur liðið orðið fyrir áfalli. Þeirri óheppni er ekki lokið því Pau Gasol verður frá næstu sex vikurnar.

Gasol fór af hækjum í leik liðsins á þriðjudag og verður að lágmarki frá í sex vikur vegna meiðslanna. Þurfi að skera hann verður hann frá í 12 vikur.

Dwight Howard hefur líka verið að glíma við meiðsli í vetur og svo var Steve Nash miklu lengur frá en í fyrsta var búist við.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×